111533092300882614

Rétt áðan sá ég silfurlitaðan Honda Civic (sportbílinn) með númeraplötuna Taz. Stuttu síðar sá ég silfurlitaðan Citroen Xcara með númeraplötuna Raz. Báðir bílarnir eru svipaðir í laginu. Þetta þótti mér undravert.

Annars hóf ég (tilraun til) að kenna Silju á gítar. Vandamálið var að gítarinn hans Sigga er í hönki, en þar lá hnífurinn í kúnni því Silja getur ekkert æft sig á spastískan gítar. Eftir smá umhugsun fórum við til Alla og fengum hans gítar lánaðan. Sá galli var á gjöf Njarðar að klukkan var orðin of margt til að við gætum haldið kennslunni áfram. Allt er þó gott sem endar vel og höfum við sæst á að halda þessu áfram á morgun.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *