Bíllinn

Bíllinn hennar mömmu lítur út fyrir að einhver digur hafi oltið á húddið. Tryggingafélagið segir að þeir muni aðeins greiða skaðann gegn því að mamma missi bónus. Fyrir utan fáránleika þess að hrifsa af fólki bónusinn fyrir slys sem gerðist meðan bíllinn var ekki í gangi fordæmi ég helvítis úrhrakið sem beyglaði hann. Það eru ekki til meiri aumingjar en þeir sem ráðast á kyrrstæða hluti og þeir ættu allir að brenna. Ég efast um að ég sé einn þeirrar skoðunar.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *