111713359515970684

Ég minnist þess þegar ég var í tíu ára bekk að við vorum beðin um að teikna mynd af mengunarvöldum. Einn strákur, hvers nafn verður ekki nefnt, teiknaði mynd af drossíu (e. Limousine) með kjarnorkuversstrompi ofan á, sem í þokkabót var að því kominn að springa (e. meltdown). Ég gerði þau mistök að spyrja hann hvers vegna hann teiknaði kjarnorkuver ofan á bílinn. Hann greip í öxlina á mér og gargaði, rauður í framan, af öllum lífs- og sálarkröftum: Þetta er ekki kjarnorkuver, þetta er eins og Hómer vinnur í!!! … ! (hér þurfti punktalínu vegna gríðarlegs fjölda upphrópunarmerkja)
Ég starði á drenginn í smástund. Svo gerði ég honum ljóst að Hómer þessi ynni svo sannarlega í kjarnorkuveri. Þá varð hann reiður og færði sig í hinn enda stofunnar. Eftir á að hyggja held ég að hann hafi haldið að Hómer ynni í strompinum á kjarnorkuveri (hvaðan ætti hann annars að fá slíka hugmynd?!) og þannig hafi misskilningurinn orðið hjá honum.

En hann var frumkvöðull. Því má ekki neita. Í þá daga keyrði enginn um á drossíum með áföstu kjarnorkuveri, en í dag keyra allir, ALLIR, á D.M.Á.K. (stytting á drossíum með áföstu kjarnorkuveri). Enda er það engin afsökun lengur að bíllinn sé rafmagnslaus. Halló! Bíllinn þinn klýfur úraníum!

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *