111713374622791929

Þegar ég var barn studdi ég Sjálfstæðisflokkinn í einu og öllu, því eins og öll önnur börn gerði ég ráð fyrir því að verða ríkur, og hugði ég, að þar væri auðvaldið niður komið. Var ég bráðþroska? Hreint ekki. Enda varla hægt að tala um neinn sérstakan þroska þegar Sjálfstæðisflokkurinn á í hlut.

Þetta segi ég raunar einvörðungu til að espa vissa menn upp.

Annað sem ég vildi koma á framfæri er merking orðsins „ástmögur“, en merking þess orðs mun vera ástmaður. Sem er skrýtið, því mögur þýðir sonur. Ullabjakk! Héðan af mun öll notkun orðsins „ástmögur“ túlkast sem ígildi sifjaspells í mínum huga.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *