108630253442396508

Margar réttar ákvarðanir voru teknar í dag og mörg skref í rétta átt. Vil ég ítreka það við hlutaðeigandi eins af umræddum málum að viðkomandi þarf ekki að hafa áhyggjur af mér, en mér þóttist skynja það á téðum einstaklingi er ég ræddi við hann/hana fyrr í dag (ég nafngreini einstaklinginn ekki af virðingarástæðum og, af þeim ástæðum, að í raun kemur þetta engum öðrum við).

Og fyrir þau ykkar sem finnst enn að ég eigi að fara til sála segi ég þetta: Þessi dagur hefir verið mér mun betri en nokkur therapía gæti orðið.

Að lokum birti ég þetta aftur, með von um að einhverjir skrifi undir. Þetta varðar okkur öll:

UPPFÆRT
Í alvöru talað, það er allt í lagi með mig. Ég vil ekki að fólk missi svefn yfir því hvernig mér líður vegna hins og þessa; allir standa á missterkum fótum við mismunandi aðstæður og í raun snýst málið um að yfirstíga vandann – hver svo sem hann er. Það tekur, eins og gefur að skilja, mismikinn tíma eftir því hverjar aðstæðurnar eru, og það getur enginn gert fyrir mig. En í alvöru talað er allt í lagi með mig. Mér líður strax betur eftir samskipti mín við hlutaðeigandi í dag.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *