Handtaka

Klukkan rétt tæplega tvö í nótt vaknaði gervallur Laugarnestangi, er ótíndur glæpahundur hlaut makleg málagjöld, eftir að hafa (að því er virtist) brotist inn í næsta hús. Mændu sakleysingjar skelfingu lostnir á aðfarirnar og gervöll mannkind gat heyrt skítseyðið brúka munn við löggjafarvaldið (ath. að hér er ekki átt við Alþingi). Ýmis fúkyrði viðraði glæpamaðurinn, en ekkert dugði til að draga kjarkinn úr löggæslumanninum, og brutust út fagnaðarlæti mikil, er maðurinn var fjarlægður.
Náði ég örfáum myndum af atburðinum og skal ein birt hér. Þetta mun vera önnur handtakan sem ég upplifi hér í götunni á þremur árum.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *