108945282473159294

Það er varla hægt að þverfóta sig fyrir msn-samtölum á bloggsíðum, en þetta setur steininn alveg úr. Því set ég það hérmeð sem reglu, að séu msn-samtöl yðvar eigi fyndnari en það sem hér ég á tengi, getið þið allt eins sleppt því. Klímags (e. climax) msn-samræðnanna hefur verið náð og allt sem þið gerið á msn héðan af verður lélegt í samanburði.

Ef einhver er mér ósammála (ha, The fool!) má senda mér skondnar msn-samræður á tölvupósti. Ég tek því þannig, að fái ég eigi betri samræður en þær sem ég tengi á, sé almennt samþykki fyrir því að klímagsinum sé náð.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *