La forza del destino

Allir virðast búnir að ákveða að Bush sé endurkjörinn. Ekki ég. Ég ætla að halda í bjartsýnina, svona einu sinni á ævinni. Ekki að Kerry sé neitt skárri, himnalengjan sú arna. En vissulega fælist ákveðin yfirlýsing í að kjósa ekki stríðsæsingagibboninn aftur. Og ég er ekki sáttur við að tæpur helmingur bandarískra kjósenda hafi örlög heimsins næstu fjögur árin í höndum sér.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *