Fónem

Ekki er við lesendur mína að sakast þótt þeir megi mér enga hjálp veita, en mér eru allar bjargir bannaðar. Ég neyðist því til að hefjast handa við sjálfa samanburðarvinnuna, sem er í raun algjör óþarfi, þar sem öll vinnan hefur þegar verið unnin fyrir mig. En hún er skemmtileg og fræðandi svo ég kýs að gera þetta sjálfur eftir fremsta megni.

Ekki að ég sleppi við hljóðfræðina. Það kemur að því að ég þarf að bera saman einstök hljóð og þróun þeirra. Þá vantar mig ennþá hljóðtáknin og skortur á þeim núna gefur slæm fyrirheit um framtíðina. Ég hef sex daga.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *