Allt óþolandi

Ég er í mjög vondu skapi. Ekkert er mér óviðkomandi því allt fer í taugarnar á mér. Mér væri skapi næst að kyrkja einhvern með skítugum sokk. Svona ömurlegheit fara sérstaklega í taugarnar á mér. Þessar þóknanir námu hærri upphæð en safnaðist fyrir krabbameinsveiku börnin og ef valið ætti að standa milli þess að styrkja spikfeita nótalenthálfvita eins og Kristján Jóhannsson eða krabbameinssjúk börn, hvað myndi fólk velja? Jú, það velur að gefa Kristjáni pening fyrir nýrri álmu á húsið sitt við Gardavatn, eða hvað svosem hann gerir nú við þetta.

Mér finnst enginn of góður til að gefa vinnu sína í þágu málstaðarins. Vilji menn ekki gera það ætti heldur ekki að ráða þá.

Svo vænir ofsóknarbrjálæðingurinn og fíflið hann Árni Johnsen menn um þjófnað hátt ofan úr turni glerhússins. Verður engum böndum komið yfir hálfvisku þessa manns?

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *