Fyrir nokkru var ég beðinn um að spila í brúðkaupi og játti ég því. Lagavalið hefði þó mátt liggja fyrir aðeins fyrr. Það er ekki lítið á mann lagt að eiga að læra lög sem hlýða engum náttúrulögmálum þegar kemur að rytma. Eða lög sem ég hef engin tök á að verða mér úti um til áhlustunar. Kannski er þetta bara ástæðulaus fullkomnunarárátta af minni hálfu. En sum lög eru hreinlega bara ekki samin fyrir gítar.