110478406150023736

Hvaða fökk? Þetta er bannað, Himmi! Kann raunar að meta húmorinn.

Vörutalning gekk annars prýðilega og fyrri helmingur hennar tók aðeins tólf tíma. Ég hefði verið lengur hefði ég mátt. Í einni af fjölmörgum kaffipásum minntist ég á Ho-Chi-Minh borg við víetnamískan (íslenskan) vinnufélaga minn. Þá hrósaði hann mér fyrir kunnáttu mína í víetnamísku, sem er engin. Eftir það gaf hann mér sýnikennslu í kínversku. Ég hef komist að því að ég verð að læra hana. Virkilega fallegt mál, eins og hefur raunar alltaf verið vitað.

Ég hef fengið svo mikið af undarlegum fregnum undanfarið að ég veit svei mér ekki í hvorn fótinn ég á að stíga. Enda erfitt að stíga í fæturna, þegar þeim er svipt undan manni í hvívetna.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *