110537392008307539

Fyrir sumum gæti það hljómað spennandi að vera umdeildur. Þá nægir að líta á Hannes Hólmstein til að draga úr þeirri spennu. Eitt sinn var því haldið fram við mig að Hitler væri umdeildur. Það fannst mér þó merkileg saga, enda ekki margt að deila um í hans fari.

Hins vegar finnst mér töff að vera bannfærður. Ég gæfi frumútgáfu Lexicon Poeticum fyrir að vera bannfærður, annars vegar ef páfinn væri ekki á annað borð hættur í bannfæringarbissnessnum og hins vegar ef ég ætti frumútgáfu Lexicon Poeticum.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *