Í dag hef ég eingöngu nærst á kaffi

Jæa, þá hefur minn fyrsti pistill birst á Morgunpóstinum. Pistillinn er einnig væntanlegur á heimasíðu UVG og þá væntanlega líka á skoðun.is. Eins og venjulega tek ég ekki við athugasemdum um pistilinn hér. Ég hef raunar þegar tekið eftir því að hann var sendur inn í fljótfærni. Hann hefði mátt orða betur sumstaðar auk þess að ég hef fundið a.m.k. eina málfræðivillu síðan ég sendi hann inn.

Stjórnmálafræðikúrsinn sækir í sig veðrið. Þó ekki að öðru leyti en því að umræður hafa færst í aukana. Mér leiðist hinsvegar að kennarinn sé farinn að tjá sínar skoðanir á mönnum og málefnum. Til þess hefur hún ekkert umboð.

Í dag hef ég eingöngu nærst á kaffi. Nú, þegar heim er komið, skal úr því bætt.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *