Svekk!

Ég ætlaði að vera voða sniðugur og prenta út í skólanum helming ljóðabókar eftir sjálfan mig sem ég hyggst selja vinum mínum fyrir efniskostnaði. Gerði ég það svo ég þyrfti ekki að eyða blöðum hérna heima. Ég prentaði út fimmtíu blaðsíður. Svo stakk ég blöðunum í prentarann hérna heima, til að prenta á hina hliðina, en hafði blöðin í öfugri röð við það sem átti að vera. Fimmtíu blöð til einskis, takk fyrir!

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *