Uppgerð Group

Merkilegt hvað fólk talar um að gera upp bíla og þess háttar apparöt, þegar nafnorðun af sögninni gæfi af sér ranga mynd af verknaðinum, t.d. ef fyrirtæki sérhæfði sig í uppgerð eða uppgjöri. Það væri ekki heil brú í því. Þess vegna talar fólk líka gjarnan um verkstæði, sem er ágætt. Enda er nafnorðun sagna algjör hryllingur.

Og ég vona að enginn nafnorði þennan verknað fyrr en surtarlogi brennir fold alla.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *