Berdreyminn Stackanov

Nei, ég lýg engu þótt ég segi draumfarir mínar ekki sléttar. Nú í nótt dreymdi mig, auk færslunnar fyrri í dag, að Skúli væri skegglaus. Það hefur nú komið á daginn að Skúli er orðinn skegglaus. Fyrst ég er greinilega berdreyminn geri ég ráð fyrir því að ef Þorkell minnist ekki á Sigrúnu, kærustu Sigga húsvarðar, í skólanum á morgun, þá hafi hann þegar gert það í skólanum í dag.

Ég hef verið mjög upptekinn í dag og í gær og lítið farið út úr húsi. Það hefur skilað sér í árangri, en betur má ef duga skal. Harkan verður tekin næstu daga, en ég geri samt ráð fyrir því að ég mæti í skólann á morgun. Minna má það eiginlega ekki vera.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *