Ástæða þess að ég er töff en ekki þið

Í gær fórum við faðir minn í Herrahúsið og keyptum á mig smókingskyrtu og slaufu, svo smókinginn minn endi ekki æfidaga sína mölétinn inni í skáp (enda þótt þar sé enginn mölur). Í gær var ég svo að bisa við að læra slaufuhnútinn. Gafst upp öskrandi og emjandi af bræði. Svo fékk ég hugljómun áðan og þetta er afraksturinn. Ójá, sjáið þessa fallega hnýttu slaufu. Þið megið hylla mig sem guð ykkar núna.

4 thoughts on “Ástæða þess að ég er töff en ekki þið”

  1. Það er ég einnig. Eitthvert slaufuséní sagði á heimasíðu nokkurri um slaufur: „Of course, a pre-tied bow tie is not something to be seen with unless you’re a waiter or a musician.“ Og mun sá vera mestur alls sannleiks.

  2. Er það ekki hálfgert metnaðarleysi að kunna ekki að hnýta eigin slaufu, eigi menn smóking fyrir sérstök tilefni? Það er eiginlega eins og að nota smellubindi í staðinn fyrir alvöru.

Lokað er á athugasemdir.