Síðan er öll í drasli eftir umskiptin og ég verð að játa mig sigraðan. Kerfið er svo einfalt að mér er fyrirmunað að læra á það. Ég get til dæmis ekki eytt þessum bjánalegu tenglum á þetta útlenda lið sem ég þekki ekkert, né heldur bætt inn mínum eigin, né neitt. Jahérna, en þetta hlýtur að koma.
Uppfært:
Mér gengur brösuglega að koma mér upp nýju útliti. Veit einhver hvort ég hafi yfirhöfuð heimild til að uploada nýju útlitsþema á heimasvæðið mitt? Það eru tvö sem ég er að gæla við, þetta og þetta.
Annað, er ekki hægt að velja allar þær færslur sem ég vil breyta á sama tíma, eins og í MT? Þarf ég m.ö.o. að manúalt breyta hverri færslu svo hún sýni rétt ártal, rétta klukku o.s.v.?
Þú ferð og bætir við hlekkjaflokk í link categories. Veit ekki hvernig maður eyðir út þessu bloggroll dóti.
Mér tókst að redda tenglunum. Ég breytti blogroll þannig að aðeins nýjasti tengillinn sæist og breytti nafninu í tenglar. Svo gat ég einfaldlega valið um hvaða tengla ég vildi sína, utan nú gæti ég ekki birt útlendu tenglana þótt ég óður vildi.
Haha, blast from the past
Hver kommentar nafnlaust?