Kapítalið kvatt

Ég sagði upp í dag. Mikið er gaman að segja þetta. Áætluð starfslok: 30. apríl 2006.

Annars hef ég brotið loforðið og er farinn að yrkja aftur.

Enn eitt: Ég velti fyrir mér hvort hið góða fólk á Ljóð.is sé með Jón-Thoroddsen-yngri-fetish. Hann á áreiðanlega flest ljóð dagsins. Ekki að það sé slæmt, hann á það fyllilega skilið.

Enn enn eitt: Það stendur víst til að halda Laugalækjarskólaríúnjon í júní. Það eru sex ár síðan við útskrifuðumst. Ég hélt að svona ríúnjon gerðust aðeins í kvikmyndum. Fyndið líka að halda þetta núna, ég geri ráð fyrir að flestir hafi haldið ágætu sambandi, a.m.k. þeir sem fylgdust að gegnum framhaldsskóla. Ísland er eiginlega of lítið fyrir ríúnjon af nokkru tagi.

5 thoughts on “Kapítalið kvatt”

  1. Það er eiginlega ríúnjon í hvert sinn sem ég fer út í búð, alltaf skal maður hitta einhvern.
    Og já, sko mig! Fullvissa þess að enginn verður þræll að eilífu.

Lokað er á athugasemdir.