Tvö atriði sem vakið var máls á á samkundu hjá Birni Frey Björnssyni

1. Hugmyndin um að appelsínur séu náttúrlegar er álíka vitræn og að halda að pakkar af niðurskornum Gouda-osti vaxi á trjám; appelsínur koma í imbaheldum umbúðum, haganlega niðurskornar í lögulega báta, lötum Homo non sapiens non sapiens til hægðarauka. Það ætlar enginn að segja mér að þetta sé tilviljun. Klárlega er hér um að ræða samsæri stóra bróðurs til að halda okkur niðri, sem hefur gengið það lengi að við tökum niðurskornum appelsínum sem sjálfsögðum hlut. Við búum í sýndarheimi. Það er auðvelt að trúa öðru þegar við þekkjum ekki annað. Appelsínur eru ópíum fólksins. Forðist appelsínur.

2. Prómeþeus var fjötraður á fjallstindi hvar örn kroppaði úr honum innýflin dag hvurn. Yfir nótt uxu þau aftur og leikurinn hélt áfram næsta dag. Til sögunnar kemur yrðingin: Ice T. étur Snoop Dogg í morgunmat. Hugsið ykkur svo að Snoop vaxi aftur á nóttunni og leikurinn endurtaki sig morguninn eftir. Reynið svo að finna gróteskari hugmynd.

12 thoughts on “Tvö atriði sem vakið var máls á á samkundu hjá Birni Frey Björnssyni”

  1. Skemmtileg hugmynd um Ice T., Snoop og Prómeþeus. Minnti mig á þessa klassík úr Happy Gilmore:
    „I eat little pieces of shit like you for breakfast!“
    „You eat little pieces of shit for breakfast?“

  2. Sko, eftir nánari eftirgrennslan í skjalahirslum ARCHIVVM SECRETVM APOSTOLICVM VATICANVM hefur áður óþekkt útgáfa af frumefnakenningu Aristótelesar komið í leitirnar:
    Halldór Blöndal = Jörð (þurr og kaldur),
    Grétar Mar Jónsson = Vatn (kaldur og blautur),
    Gunnar Birgisson = Vindur (blautur og heitur),
    Ice T. = Eldur (heitur og þurr).
    Gert er ráð fyrir að fimmta frumefnið sé óþekkt og ofar okkar skilningi.

Lokað er á athugasemdir.