Fjórar til sex blaðsíður orðnar að þrettán með tilvísanaskrá. Verk hafið klukkan 14:12 á sunnudegi. Verklok klukkan 19:21 á mánudagskvöldi. Tveggja daga vinna, afrakstur slæmur. Afar slæmur. Sama kvöld klukkan 19:53 uppgötvast: Ríflega hundrað blaðsíður fyrir listasöguprófið á morgun.
Api get ég verið.
Þetta er nettur hiksti.
Í færslu sem ég skrifaði áðan og ákvað að birta ekki kemur m.a. fyrir eftirfarandi málsgrein:
„Haldi ég áfram sama vinnuhraða (með tilheyrandi slæmum vinnubrögðum) er hætt við ég gangi ekki heill frá verki.“
Það var fyrir uppgötvunina.