Gegnum storminn þér sjáið þá koma

Það er rólegt hér á Kringlusafni. Keikur stendur AV og vígreifur og mænir út um þann mikla ljóra safnsins á veðraósköpin útifyrir. En það er nú einu sinni svo, að sá sem veigrar fyrir sér að vaða elginn í skiptum fyrir fróðleik, hann er ekki fróðleiksins verður. Það er því útlit fyrir að einungis hinir allra fróðleiksþyrstu muni sækja andlegar nábjargir AV í dag.

Hinir allra fróðleiksþyrstu sýnist mér á öllu vera eldri borgarar. Fróðleikurinn glæpasögur. Jamm.

6 thoughts on “Gegnum storminn þér sjáið þá koma”

  1. Til hamingju með djobbið. Það var nú bömmer að við skyldum ekki fá þig í Grafarvoginn. En við sjáumst væntanlega í fyrramálið í kaffiboði í Gerðubergi 🙂

  2. Aggi minn, ég elska þig. En það var ekki ég sem átti frumkvæðið. Það var ekki ég! Ég, ég elska hann!

Lokað er á athugasemdir.