Af gvöðs náð nefni eg yður:

Mér datt í hug að blogga um hversu mikil fyrirhyggja það hefði verið að nefna barnið sitt Tan fyrir fimmtíu árum. Ennfremur hugðist ég og leiða að því líkur að ónefndur rithöfundur ætti vinsældir sínar allar undir jafn hentugu nafni miðað við tíðaranda. En ég er hættur við það núna.

Í gær tók ég framúrstefnulega ákvörðun um útlit mitt sem draga mun þónokkuð úr kynferðislegum straumum þeim sem þessi kroppur sendir frá sér. Nema ef væri til syndsamlegri takmarka. Ahem, já, eða eitthvað. Það varir þó ekki lengi …

Veðrið er hryssingslegt.

2 thoughts on “Af gvöðs náð nefni eg yður:”

Lokað er á athugasemdir.