Ítalía – Þýskaland

Kommon, framlenging! Það er líka óþolandi þrátt fyrir aðra vanhæfni íslenskra íþróttaþula hversu augljóslega þeir eru hallir á „herraþjóðina“ þýsku. En vitanlega er það þeirra mál ef þeir vilja sænga hjá mönnum sem heita Schweinsteiger.
Annars vantaði bara dánaryfirlýsingu þegar einn Ítalinn lá í valnum: Paolo de la Frutti, tuttugu og átta ára gamall, búinn að spila x marga leiki, liggur hér dauður; iðrin úti, hrafnarnir bíða þess aðeins að þýska ljónið ljúki sér af við að svívirða hræið!