Þessa fegurð fékk ég senda nú í morgun. Finnst ég betri maður eftir á.
Afsakið annars allt málfræðibrjálæðið síðustu daga. Merkilegt samt hvernig allir virðast hafa áhuga á málfari en færri á málfræði. Held að fólk hafi almennt meiri áhuga á að stýra hvernig fólk talar en að vita af hverju það talar eins og það gerir.
Mig langaði að gubba þegar ég heyrði þetta
en það er kannski bara að því að ég er þunnur
Ölkorf, slíkt er karlmanns gaman. Og margar eyrarúnunnar að auki, ef út í það er farið.
Jamm, mér líður betur á sálinni eftir að hafa heyrt þennan yndislega lestur.