Mér er óskiljanlegt hvers vegna fólk er að mótmæla mótmælum, hvort heldur það er vegna fjöldamorða á Afgönum, Írökum, Tíbetum eða barsmíðum á ljósálfum í Saving Iceland svo ekki sé minnst á róttækar aðgerðir vörubílstjóra. Ef beinskeyttar aðgerðir er það sem þarf þá er það ekkert flóknara. Miðað við hvernig stjórnvöldum er tamt að bregðast við hvers kyns mótmælum má það vera alveg ljóst að hin hefðbundnu íslensku mótmæli duga einfaldlega ekki lengur, og já, ef það er það sem þarf, þá ber almenningi að „kúga“ stjórnvöld til að fá sínu framgengt – hvor kaus enda hvern til að fara með stjórn í þessu landi? Menn geta svo verið sammála eða ósammála málstaðnum, en eftir sem áður er það lítilsvirðing við réttinn til að mótmæla og gengisfelling á lýðræðishefðinni að vera fúll á móti þegar fólk lætur í sér heyra. Verstir þykja mér frjálshyggjuguttarnir sem leggja skatta og mótmæli að jöfnu við ofbeldi. Sitthvað er nú ofbeldið. Ef fólk vill hvorki búa í samfélagi eða við lýðræði getur það bara farið eitthvert annað. Zimbabwe, til dæmis.
Ég tek fram að ég er ekki að mótmæla mótmælunum eins og kemur skýrt fram ef færsla mína er lesin.
Ekki beint til þín, að undanskildri vísuninni í að kúga stjórnvöld, sem mér finnst dálítið skemmtileg hugmynd.
Segi þetta bara af því að þetta gæti komið þannig út af því að ég er mótfallinn málsstaðnum.
Já, hana nú. Til Simbabve með frellana!
Það er ekki kominn tími til að mótmæla! Leggjum ekki til atlögu mátlaus, söfnum krafti unz við getum með vizku okkar molað múra borgarastéttarinnar.
Himininn er enn heiður, gott fólk. Við skulum bíða enn frekar. Við skulum bíða ákveðna forsenda, bæði félagslega og efnahagslega.
Bíðum eftir því að borgarastéttin hefur
lokið við að éta leifarnar, étið öll
tré, haglið og sólina. Bíðum eftir því
að þeir narti í sitt eigið hold.
Þá getum við stigið fram! Þá munum við
loks sigra en fram að því eru mótmæli tap. Færri klukkustundir búa til verðmæti. Krónan hrynur og við getum ekki verzlað erlendis.
Eigum við ekki að slæpast í heitum löndum þangað til byltingin verður? Við skulum ekki vera með læti þangað til.
дшаш индештпшт сщькфвуы!
Fróðleiksfúsum má benda á að rússnesku stafirnir tákna: dshchashcs indeshcstpshcst swshkfvú. Það var nú allur boðskapurinn.