Stúdentalífið

Ég ætti kannske að breyta þessari síðu í svona stúdentablogg. Líf stúdentsins í hnotskurn snýst fyrst og fremst um lífið á Görðunum, ritgerðaskil í pósthólfið í Árnagarði/Odda, ferðir á Þjóðarbókhlöðuna, kynlega kvisti sem þar leynast milli hilla, latté á Kofa Tómasar frænda, debatta um hvað sé besta kaffið frá Kaffitár, frískleg morgundögg eða kvöldroði, rustalegt hár, lopapeysur og hvaða indietónlist er í græjunum hverju sinni. Aðra hverja helgi mun ég svo blogga um stúdentafögnuði á öldurhúsum bæjarins, t.d. vísindaferð heimspekinema, rannsóknaræfingu hugvísindadeildar og árshátíð sagnfræðinema. Hverjir voru hvar, hver fór í sleik við hvern. X-Röskva aftan við og slaufan er bundin um pakkann.

Hvað halda svo lesendur að mikið af þessu eigi við mig?

9 thoughts on “Stúdentalífið”

  1. Haha!
    En svona í alvöru, ég ætla að skjóta á þetta.
    Þú býrð ekki á Görðunum.
    Þú ferð sjaldan á Hlöðuna.
    Þú ferð oft á Kofann en drekkur ekki latté.
    Þú ferð ekki á Kaffitár og þér er sama hvað sé besta kaffið þar.
    Þú missir oftast af morgundögginni.
    Þú ert oftast greiddur.
    Þú gengur ekki í lopapeysum.
    Þú hlustar á litla sem enga indietónlist.
    Þú ert ekki í heimspeki né sagnfræði.
    Þú styður ekki Röskvu.
    Eftir standa: Ritgerðarskil, kvöldroði og náttúrulega sleikurinn.
    Rétt?

  2. En þú varst á lista hjá Háskólalistanum í fyrra, var það ekki? – ég gerði bara ráð fyrir að þú værir þá stuðningsmaður þess framboðs. En bauð hann fram í ár?

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *