Svalir gaurar, gott stöff.
Day: 24. júlí, 2008
Írónía
„Í FANGELSI FRÆGÐARINNAR
Kalli Bjarni gerir upp við Idol.
Ástin, fallið og upprisan.“
-Mannlíf, 2005
Sveitti maðurinn
Hann getur samt haft ánægju af því að flörta á feisbúkkspjallinu í vinnunni, vitandi að hún finnur ekki lyktina af honum þar sem hún er, að manneskjan sem þó finnur fnykinn hinumegin við afgreiðsluborðið veit ekki að hann er með holdris, og það að lesandinn veit ekki hvað er satt og logið þegar sveitti maðurinn stimplar hugleiðingar sínar á bloggið.
Slíkt er megin sveitta mannsins.
Flottur
Þú svafst of lengi til að ná morgunsturtunni, og það var ekki fyrr en þú varst kominn í vinnuna að þú fannst dauninn sem lagði upp af þér.