Í gærkvöld horfði ég á Gremlins í fyrsta skipti í mörg ár. Á meðan ég mundi nákvæm smáatriði í mörgum senum, meiraðsegja tónfall sumra setninga, þá var ýmislegt annað sem ég hafði ekki veitt sérstaka athygli fyrren nú:
• Þemalag myndarinnar er miklu meira eitís en ég hafði gert mér grein fyrir, þó vissi ég alltaf að myndin var gerð árið 1984.
• Corey Feldman er í henni, í sínu næstminnst pirrandi hlutverki; það minnst pirrandi var í Stand By Me. Persónan er engu að síður flöt og óþörf. Eina hlutverk hans í myndinni er að bleyta Gizmo en hver sem er hefði á endanum getað slysast til þess.
• Þegar Gizmo engist um af sársauka eftir að hafa blotnað svo hárkúlur skjótast úr honum fríkar Billy hvorki út né skammar Corey Feldman fyrir að skaða dýrið (og lengst framan af virðist hann hafa gleymt því að það má alls ekki bleyta svona dýr, ekki síst þegar pabbi hans fær dollaramerki í augun og hugsar sér að rækta dýrin fyrir alheimsmarkaðinn, þá virðist Billy bara finnast það vera góð hugmynd).
• Það kemur hvorki fram hvort mogwai fjölgi sér eingöngu með vatni né hvort þeir sem þannig verði til séu alltaf vondir. Hvaðan kemur Gizmo til dæmis? Hvernig má það svo vera að fullvaxinn púki fæði af sér fullvaxna púka en ekki litla mogwaia einsog Gizmo fæðir? (einhver bjáni skrifaði skáldsögu eftir myndinni sem útskýrir allt þetta á heimskulegasta mögulega hátt – ekki leita það uppi!)
• Kingston Falls er svo lítið og krúttlegt bæjarfélag að fremsti vísindamaðurinn sem Billy getur farið með mogwaiana til er barnaskólakennari. „Fokk vísindasamfélagið,“ hugsar hann (áreiðanlega) og rannsakar dýrið sjálfur.
• Það að mogwaiarnir eru algerlega óþekktir í Bandaríkjunum sýnir stereótýpíska ímynd af hinni mystísku Kína. Gamli karlinn sem á Gizmo veit allt um þessar skepnur, einsog ábyggilega margir Kínverjar, en samt hefur ekkert spurst út til umheimsins um tilvist þessara dýra (eða réttara sagt álfa). Það meikaði ekkert meira sens árið 1984 en í dag.
• Frú Deagle er algjörlega byggð á herra Potter úr It’s a Wonderful Life, sem mamma Billys sést einmitt horfa á í annarri senu. Þeirri senu mundi ég raunar vel eftir enda var ég alinn upp á klassískum bíómyndum.
• Mogwaiarnir eru fljótir að læra tungumál og hugsa ekki um neitt annað en að éta. Púkarnir eru varla fyrr skriðnir úr púpunum en þeir vaða í eldhúsið með orðunum „Yum yum“. Þegar Gizmo fyrst kemur heim til þeirra er hann fljótur að æpa „Bright light!“ þótt hann hafi fram að þessu aðeins búið meðal kínverskra.
• Þau eru ótrúlega fljót að grípa til vopna og hefjast handa við að drepa fyrrum gæludýr sín miðað við forsendur.
• Púkarnir eru mikið fyrir að fikta í farartækjum og skemma tækjabúnað, sbr. vélarbilanir sem nefndar voru gremlins í síðari heimsstyrjöldinni. Þetta er rætt í myndinni, en þegar ég var barn gerði ég alltaf ráð fyrir að persóna Dicks Millers í myndinni væri bara full og að bulla.
• Það er ein sú allra fallegasta og yndislegasta sena sem ég hef séð í kvikmynd þegar púkarnir skemmta sér yfir Mjallhvíti og syngja með.
Sjálfsagt var það eitthvað fleira en þetta er svona það helsta.
Ekki borða eftir miðnætti. Hvernig má vera að líffræði dýrs sé miðuð við manngerðan tímamælikvarða?
Akkúrat. Það var einhver á netinu sem spurði hvenær „eftir miðnætti“ hættir og fékk hið mjög edrú svar „6 am“. Svo er aldrei minnst á hvort dýrin fari eftir alþjóðlegu tímalínunni eða ekki.
Þið eruð að misskilja, tímatalið er ekki manngert – það hefur augljóslega alltaf verið miðað við matarvenjur mogwaia.
Það gæti nú skýrst af birtustigi eða einhverju svoleiðis en þá er spurning hvernig árstíðamunur spilar inn í það.
Það setur tímalínu Íslands í áhugavert samhengi.
Gremlins 2 gerði náttúrulega gott grín að þessu.
Þessi mynd er ágæt en Gremlins 2 er líklega besta framhaldsmynd sem gerð hefur verið. Þar eru einmitt þessar tilfallandi reglur hafðar að háði og sú mynd nær Looney Tunes tóninum betur en fyrri myndin. Leikstjórinn er víst mikill aðdáandi kaótísks teiknimyndaofbeldis en mér fannst til dæmis fyrri myndin vera á köflum of grimmileg, svona miðað við umfjöllunarefnið.
Hvernig var gert grín að þessum reglum í Gremlins 2? Ég man ekki eftir því, þarf greinilega að sjá hana aftur.
Mér fannst fyrri myndin alveg temmilega grimmileg þar til ég sá hana aftur í gær, ég var farinn að hafa áhyggjur af sumu fólkinu, en sú seinni einmitt kannski of kjánaleg. Kannski breytist það þegar ég sé hana aftur.
Mikið gleður mig annars hversu margir hafa skoðun á Gremlins!
Gizmo ka ka.
Þetta er um margt áhugaverð túlkun hjá þér en heldur þykir mér hlaupið að ályktunum. Geturðu bara fullyrt sisona að persóna Corey Feldmans sé flöt og óþörf? Getur ekki verið að hann hafi verið djúpur hugsuður og flókinn karakter inn við beinið? Er víst að barnaskólakennarinn sé alveg örugglega fremsti vísindamaðurinn í bænum? Getum við útilokað þann möguleika að Billy hafi bara ekki vitað um hina vísindamennina? Var það ætlun höfundar að gefa stereotýpíska mynd af Kína? Nú vitum við að margir hafa þá mynd af Kína að það sé mystískt. Það hlýtur að þýða að eitthvað sé til í þessari mynd af Kína þótt hún sé kannski svolítið ýkt. Þetta er þá kannski ekki svo skökk mynd eftir allt saman. Hefur höfundurinn sagt að frú Deagle sé byggð á herra Potter? Getur ekki verið að Gizmo hafi verið búinn að læra að segja Bright light! í gegnum língvafón? Það er alls ekkert víst að hann hafi verið fljótur að læra það. Hvað hefurðu því til sönnunar? Geturðu vísað í rannsóknir sem sýna að Kínverjar séu almennt lengi að læra að segja Bright light!?
Málið er að það sem er mikilvægast í myndinni er að hún sýnir hvernig mamma Billys á sökina á öllum vandræðunum. Auðvitað ber hún ábyrgð á að sjá til þess að hugsað sé rétt um gæludýr sem kemur inn á heimilið. En eins og oft gildir um kvenpening stendur hún ekki undir þeirri ábyrgð sem henni er ætluð.