Ég er enn ekki sofnaður. Það veit ekki á gott, mér hefði verið rækileg þörf á að sofa úr mér fýluna. Þess gefst víst ekki kostur núna, það er málfræðitími klukkan tíu, svo vinna á safninu frá hádegi til sjö. Eftir það þarf ég víst að ná mér upp í lestrinum.
Vona að mér fari svo loksins að gefast almennilegur tími til að klára þessa helvítis bók mína.
Andskoti væri það gott já.
Já, mikið helvíti 😉
Vertu hamingjusamur arngrimur, og gladur. Hlakka til ad sja bokina, byd eftir henni otreyjufull! 😉
Sendi hana glóðvolga úr prentun par avion! 🙂
(hitist örskotsstund í örbylgjunni ef hún er ekki lengur volg þegar hún kemur)