Á fimmtudaginn er mér boðið í þriggja rétta máltíð á lækjarbrekku. Ekki amalegt það. Ég er búin að vera að rembast við það í dag að reyna að læra. Það gekk ekki samkvæmt óskum. Tekst það einhvern tíma?
Helgin var ágæt, vann alla helgina. Það var smá sameiginlegt teiti hjá Þjóðfræðinni og Mannfræðinni sem gekk vel þrátt fyrir fámenni. Ég kíkti svo aðeins með Lukku og Þórunni í bæinn. Við fórum á Pravda og ég verð að segja að staðurinn kom mér á óvart. En ég hef held ég aldrei áður farið á tjúttið þar. Á laugardaginn bauð hún Kolla mér í mat. Cilia hringdi líka og bauð okkur í mat og það var þá sem ég komst að því að það er ekki ég sem er svona vinsæll matargestur heldur Hlynur því að hann borðar svo mikið og er svo ánægður. Það er ekki verra 🙂 En eftir matinn, þar sem íþróttaálfurinn kom mikið við sögu (fyrir þá sem ekki vita þá er íþróttaálfurinn fuglinn hans Jóns) og kökuát, þar sem Kolla var svo myndarleg og framreiddi köku þá sátum við Kolla í sófanum eins og klessur það sem eftir var kvöldsins, mjög félagslyndar!
Ég er búin að vera endalaust þreytt undanfarið, ég kenni skammdeginu algjörlega um…
Við Hlynur erum dottin inn í Prison Break þættina, þeir eru æði!
Er farin út í búð að kaupa fisk í raspi, nammi, namm