Ég er búin að vera glataður bloggari en núna er skólinn búinn þannig að allt er á hraðri uppleið í þeim efnum 🙂
Síðan ég bloggaði síðast er ég búin að fara í tvær utanlandsferðir, ég fór til London með mömmu og í–nnu Rán fyrir páska og svo fórum við Hlynur núna um helgina til Glasgow og kíktum til Edinborgar í leiðinni. Báðar ferðirnar voru mjög góðar 🙂
Ég fer að vinna upp á flugvelli í sumar eins og svo oft áður og byrja þar í næstu viku. Þangað til eru allir velkomnir að koma í heimsókn eða bjóða mér á kaffihús 🙂 Ekki að það megi ekki þegar ég er byrjuð að vinna en ég mun hafa meiri tíma núna fyrir ykkur…