Ég missti mig greinilega alveg í heimabankanum og hef ekkert skrifað síðan 🙂
Síðan ég skrifaði seinast hef ég verið brúðarmeyja í rauðu í brúðkaupinu hjá Ciliu og Þóri og svo er ég að sjálfsögðu byrjuð aftur í skólanum. Það er svolítið skrítið, eins og svo oft áður þá fannst mér ég ekki vera tilbúin að byrja, hefði viljað fara til Spánar í svona viku áður en ég byrjaði. En maður spáir aldrei í það og skipuleggur sumarvinnu ekki út frá því…
í seinustu viku gerðust þau undur og stórmerki að ég fékk í fyrsta skipti í mörg ár alvöru gubbupest. Það er mesti viðbjóður sem til er, ég vona að þetta gerist ekki aftur næstu árin!
Á morgun er ég svo að fara á Flúðir, það er frænkuboð í pabba míns ætt, ég hef ekki séð þessar frænkur mínar mjög lengi en við systir mín ákváðum að sýna lit og kíkja aðeins…
Ef einhverjum langar að læra fyrir mig þá má hin sami gefa sig fram á msn 🙂