Siemens vs RafHa

Eldavélanördar skyldu hætta að slefa enda var um að ræða tuttugu ára gamalt Siemens helluborð, reyndar bara með 2 hellum (þetta kalla ég í góðmennsku minni eldavél).

Vinkona Eyglóar bjó hins vegar í húsi á Akureyri þar sem var ekta nothæf þriggja hellu RafHa vél, nothæf er vissulega orð sem maður fer varlega með þegar maður talar um þessar vélar, einsog ný er líklega betri lýsing.