Hinsegin rigning

Fórum á Hinsegin rignarskrúðgöngu. Hún var nokkuð flott og merkilega margir miðað við rigninguna. Ég held að í fyrra þá hafi ég verið að kvarta yfir hommaleysi í kringum mig, því hefur verið reddað núna og ég heilsaði einmitt upp á þann sem reddaði því.

Einsog Bloggara Dauðans þá fannst mér bjánalegt hvernig stelpa+strákur pörin sem gengu þarna þurftu endalaust að haldast í hendur. Reyndar hélt ég aðeins í höndina á Eygló en það var bara til að draga hana áfram. Það er svindl að ganga í hinsegin göngu og merkja sig “streit”.