Loksins netsamband

Ég hef loksins komist í netsamband heima hjá mér aftur. Ég hafði leitað að mörgum lausnum á vandamálinu en að lokum kom í ljós að síðan sem ég hafði notað til að skrá tölvuna mína inn á net stúdentagarða gerði bara ekki neitt, hún er þarna til staðar og segist skrá mann en gerir það ekki. Cat5 kapalinn sem ég bjó sjálfur til virkar, hann liggur innúr svefnherbergi inn í stofu þar sem aðaltalvan er. Nú á ég bara eftir að leggja annan jafnlangan kapal inn í svefnhergbergi aftur til að geta tengt fartölvuna við stóru tölvuna. Þá ríkir gleði. Hraðinn er náttúrulega ótrúlegur og ég gæti ekki verið ánægðari með þetta.

Síminn er hins vegar ekki ennþá kominn inn.