Friðarsinnar

Ég gekk í Samtök Herstöðvaandstæðinga í kvöld á spjallfundi, kominn tími til kannski þar sem ég er kominn með auglýsinguna hér til hliðar fyrir þónokkru síðan. Reyndar villtist ég um í smá tíma áður en ég fann fundinn vegna þess að ég er ekki maðurinn sem veit hvar barir og skemmtistaðir í Reykjavík eru.

Katrín Jakobsdóttir sagðist hafa litið á síðuna mína í dag og ég var afar glaður yfir því. Mér hefði þó fundist skemmtilegra að hún hefði komið þegar ég væri nýbúinn að skrifa margar djúpar og áhugaverðar færslur en líklega þyrfti hún að bíða lengi eftir því. Hún minntist á myndasíðuna mína, ég á einmitt úrval af illa heppnuðum myndum af henni sem ég nú sleppt því að birta að mestu. Kannski seinna.