Bloggkeppnir

Fyrr í dag vann ég Pezkarlinn með mínútumun í blogggetraun Stefáns Pálssonar.

Núna fyrir svona hálftíma síðan tók ég þátt í blogggetraun Jarlaskáldsins og tapaði með einhverra sekúndna mun fyrir Ernu Erlings. Ég er afar sár varðandi það að hafa tapað fyrir Ernu því ástæðan er án efa sú að ég tók mér of langan tíma í það að minnast á að ég afþakkaði verðlaunin því mig langar ekki í jeppa.

Í gær sigraði ég í kapphlaupi til að vera fyrstur að skrifa í gestabókina hjá henni Sigurrós.

Nú mætti halda að ég ætti mér ekkert líf en það er vissulega misskilningur, til dæmis var ég í tíma þegar ég svaraði Zappa getraun Stefáns en ég var að horfa á Seinfeld þegar ég svaraði getraun Skáldsins.