Aumur eftir daginn

Ég er aumur en samt glaður. Fór seint á tónleikana og sá síðustu hljómsveitirnar, Týr var langsíðust en miðað við fagnaðarlætin sem brutust út þá var biðin þess virði. Stemmingin var mjög góð en eftir á sögðust þeir vera óánægðir með spilamennskuna, of mörg mistök, áhorfendur virtust hins vegar vera ósammála.

Árni Þorlákur fyrrverandi útvarpsstjarna úr tvíeykinu Árni og Óli var á staðnum og var merkilegt nokk að fýla Tý.

Nils var á staðnum og var að menga allt með nördalúkkinu sínu, við reyndum að forðast hann.

Aumur, læra á morgun, próf á laugardag, læra meira, próf á mánudag, síðan frelsi í smá tíma, læra enn og aftur, próf á föstudag eftir viku, jólafrí.