Of sýrt?

Jæja, *Fritz the Cat* og *Wizards* var rúllað í gegn í kvöld. Áhrifin voru einsog við mátti búast, Halli orðaði það vel þegar hann sagði: *”ég vona að ég geti keyrt heim á eftir”* – Ef Halli hefur lent í árekstri þá er það af því hann var á sýru.

Við horfðum á brot úr viðtali við Bakshi (leikstjórann) og maðurinn virðist vera geggjaður. Hann sagði frá því að fyrsta stöðuhækkun hans í teiknimyndabransanum hefði komið til af því að hann færði borðið sitt sjálfur til og fór bara að vinna einsog hann hefði verið hækkaður í tign.

Verð að sjá *Heavy Traffic* og að gefa *Lord of the Rings* útgáfunni hans annað tækifæri.