Þrjú af fjórum

Þetta var törn, þrjú próf á fimm dögum. Samanlagt voru þessi próf 260% (tölfræðileg framsetning mín er umdeilanleg). Á þriðjudaginn í næstu viku er síðan 40% próf þannig að það má segja að önninni sé í raun svo gott sem lokið, bara tittlingaskítur eftir. Reyndar verður síðasta prófið erfitt að því leyti að ég veit varla hvað á að læra fyrir það né hvernig prófið verður. Það eru engar líkur á falli og ég held að einkunnir verði á skalanum 7-8, kannski rúmlega ef ég verð heppinn (en tæplega ef ég verð óheppinn). Þetta er í samræmi við markmið mitt um að halda mér yfir 7,25.