Ég sá að Einar var að tala um draumadaginn og ég ætlaði að fara að búa til einhverja hugmynd um slíkan dag. Ég fattaði þá hins vegar að ég hef átt ákaflega góða daga undanfarið. Góður dagur í lok mars var í London sem átti hápunkta sína á Trafalgartorgi og síðan um kvöldið í Brixton Academy á tónleikum. Fyrir tveimur vikum átti ég afskaplega indælan dag þar sem ég hitti mikið af vinum mínum og kunningjum. Draumadagar.
