Tvær áttur og nokkuð öflugir kennarar

Jæja, það eru komnar einkunnir úr báðum kúrsunum sem ég hef lokið. Kennararnir þarna eru alveg til fyrirmyndar í skilum og lenda ekki á svarta listanum. Ég fékk átta bæði í Upplýsingaleiðum 2 og Efnismenningu. Þetta þýðir líka að ég hef klárað alla kúrsa í bókasafns- og upplýsingafræðinni.