Tvíklikkaður Strætó

Fór í Strætó í morgun og hann villtist, þurfti að taka U-beygju á Reykjanesbrautinni (eða hvort hún heitir Sæbraut þarna). Áðan beið ég eftir Strætó hjá Kringlunni, sá hann koma, horfði eftir númerinu og gekk framar þegar ég var viss um að það væri sá rétti. Hann bara keyrði áfram. Ég þurfti að hlaupa yfir á Kringlumýrarbraut að ná öðrum Strætó heim. Bögg.