Jákvætt olíuverð

Ég er voðalega jákvæður í garð hækkandi olíuverðs.  Jú, þetta er svoltið pirrandi þegar fyllt er á bílinn en hann er lítill og sparneytinn þannig að þetta er engin martröð.  Það sem ég er að fíla við þessa verðhækkanir er að hér höfum við gríðarlega hvatningu til að búa til bíla sem eyða minna og ég efast ekki um að það muni skila sér ríkulega til baka á næstu árum.  Augljóslega er þetta líka til þess að minnka eftirspurn eftir jeppum, slíkir bílar hafa aldrei áður litið jafn kjánalega út.  Tala nú ekki um þá sem ferðast um á Hömmerum, slíka menn ætti nú bara að loka inni.