Í fréttum er verið að tala um að þessi árás sextán ára stráks minni á kvikmynd eða jafnvel tölvuleik. Merkilegt nokk þá minnir þetta mig hvorki á tölvuleiki né kvikmyndir. Þetta minnir mig hins vegar á eitt frægasta morðmál síðustu aldar. Leopold og Loeb morðið. Tveir ríkir 18 og 19 ára strákar rændu og myrtu fjórtán ára strák. Ástæðan var sú að þeir vildu sjá hvort þeir gætu framið glæpinn og komist upp með hann. Þetta gerðist árið 1924. Þetta var vel fyrir tíma tölvuleikja og þær myndir sem ég hef séð frá þessum tíma voru ekki mjög ofbeldisfullar þó einstaka maður hafi verið barinn í höfuðið með skó.
Mér finnst semsagt mjög vafasamt að fjölmiðlar reyni að búa til ástæður án þess að þekkja almennilega til aðstæðna. Augljóslega hefur strákurinn spilað ofbeldisfulla tölvuleiki og séð ofbeldisfullar kvikmyndir, eins og allir unglingsstrákar. En mitt gisk er að vandamálið sé töluvert dýpra en þær skýringar sem fjölmiðlafólk ætlar að búa til.
