Vandamál leyst, verkefni framtíðarinnar og bókamarkaðurinn…

Ég tók mig til og lagaði vandamál með stóru tölvuna sem hefur verið í gangi síðan í júní. Það tók innan við tíu mínútur. Núna get ég aftur hlustað á tónlist í gegnum hana. Gott að það er komið í lag en hálf pirrandi hvað þetta var auðvelt. Hefði getað reddað þessu einn, tveir og þrír fyrir löngu síðan.

Það er bara einfaldlega þannig að það hefur svo margt verið í gangi hjá mér að ég nennti aldrei að bæta við enn einu verkefni. Þau verkefni sem eru núna í gangi, utan skólans, er að koma Slæðingi út og flytja eins og einn húmanista inn í landið. Þarf reyndar líka að stunda námið. Kláraði í dag þessar 200-300 vikulegu blaðsíður hjá Valdimar en á eftir að skrifa allavega þrjár blaðsíður um efnið.  Síðan er að spjalla við Gísla um lesnámskeið í Munnlegri hefð. Jájá. Það er gaman í skólanum.

Laumaðist á bókamarkað í dag og keypti tvær bækur. Hugtök og heiti í norrænni goðafræði og Wagner og Völsunga.