108723 á mánuði?

Ef marka má Tekjublað Mannlífs þá voru þetta mánaðarlaun mín í fyrra. 108 þúsund.

Ég er með 11 þúsund krónum meira en Jón Valur Jensson samkvæmt bloggaralistanum. Sóley Tómasar er efst en Stebbifr er neðstur.

Það vantar reyndar starfsheiti hjá mér (ég fæ ekki borgað fyrir að blogga, því miður) og ég get alveg bætt því við fyrir áhugasama. Í fyrra starfaði ég bæði sem bókavörður og filmusafnsvörður. En reyndar var ég aðallega háskólastúdent í fyrra.

En aðal spurningin er kannski hvort mér líði eitthvað illa yfir þessu. Svarið er einfalt, nei, ég er alveg ákaflega rólegur yfir þessu.