Dagur vettvangsvinnu, netskorts og nýs mp3 spilara

Ég var ekki glaður þegar ég fór á fætur í morgun og sá að netið var úti. Ég þurfti að athuga ýmislegt en gat ekki.

Ég fór í Elkó í dag og fékk nýjan mp3 spilara í staðinn fyrir þann sem var hættur að virka. Fannst þjónustan í Skífunni töluvert betri en á Smáratorgi en það gæti verið að ég hafi bara verið óheppinn með starfsmann. Það var frekar neyðarlegt að sjá náungann á Smáratorgi reyna að setja of stórt batterí í spilarann.

En í dag var fyrsti í vettvangsvinnu og það gekk bara vel. Ég held ég hafi fengið heilan undirkafla frá einum þarna.